BHM

Félag háskólakennara er fjórða fjölmennasta aðildarfélag Bandalags háskólamanna (BHM). BHM er heildarsamtök háskólamenntaðra á vinnumarkaði. Bandalagið var stofnað 23. október 1958. BHM er bandalag hagsmunatengdra félaga og/eða stéttarfélaga sem starfa að fag- og vinnumarkaðslegum málefnum félagsmanna sinna. Aðildarfélög BHM eru samtals 28 með rúmlega 11.000 félagsmenn.

Meðal verkefna BHM er að:

  • Styðja við starf aðildarfélaga
  • Efla þekkingu félagsmanna á kjara- og réttindamálum
  • Semja um sameiginleg hagsmuna- og réttindamál skv. umboði
  • Gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum
  • Hafa frumkvæði að umræðu um háskólamenntun og stöðu háskólamenntaðra á vinnumarkaði

Fulltrúar Félags háskólakennara í stjórnum og nefndum BHM 2022-2023

  • Íris Davíðsdóttir, ritari Fh, í stjórn BHM
  • Baldvin Zarioh, formaður Fh, er í stjórn jafnréttisnefndar BHM
  • Íris Davíðsdóttir, ritari Fh í kjörstjórn BHM
  • Íris Davíðsdóttir, ritari Fh í lagabreytinganefnd BHM

Heimasíða BHM

BHM mínar síður