Persónuverndarstefna

Ný persónuverndarlög tóku gildi á Íslandi þann 15. júlí 2018. Félag háskólakennara hefur af þessi tilefni mótað persónuverndarstefnu.

Almennt

Persónuvernd þín skiptir Félag háskólakennara máli. Við höfum því útbúið persónuverndarstefnu sem nær yfir söfnun okkar, notkun, birtingu, flutning og geymslu á upplýsingunum þínum. Gefðu þér tíma til að kynna þér vinnubrögð okkar þegar kemur að persónuvernd og hafðu samband við skrifstofu félagsins ef þú hefur einhverjar spurningar, á netfangið fh@hi.is

Þú getur skoðað og notið vefsvæðisins okkar án þess að gefa upp nokkrar persónulegar upplýsingar, þar með talið netfangið þitt. En ef þú skilur eftir persónuupplýsingar hér geturðu verið viss um að við munum ekki selja, leigja eða deila persónuupplýsingunum þínum með neinum öðrum, nema þá aðeins að þeir geti hjálpað okkur að veita þér þá þjónustu sem þú baðst um, sbr. umfjöllun fyrir neðan.

Verndun persónugreinanlegra upplýsinga

Félag háskólakennara tekur öryggi persónugreinanlegra upplýsinga mjög alvarlega. Þegar Félag háskólakennara geymir persónuupplýsingar frá þér notum við tölvukerfi með takmörkuðum aðgangi, hýst á stöðum sem varðir eru með efnislegum öryggisráðstöfunum. Gögn eru hýst bæði á skýjalausnum Microsoft og hjá innlendum hýsingaraðilum. Öll gögn eru afrituð með reglubundnum hætti og afrit geymd á dulkóðuðu sniði.

Þegar þú birtir færslu á netsamfélagssíðu BHM eru persónugreinanlegu upplýsingarnar og efnið sem þú deilir sýnilegt öðrum notendum og þeir geta lesið það, safnað því eða notað það. Þú berð ábyrgð á þeim persónugreinanlegu upplýsingum sem þú kýst að deila eða senda við þessar kringumstæður. Ef þú gefur t.d. upp nafn þitt og netfang í færslu á umræðusvæði eru þær upplýsingar opinberar. Sýndu aðgát þegar þú notar þessa eiginleika.

  • Persónugreinanlegar upplýsingar eru gögn sem nota má til að bera kennsl á eða hafa samband við tiltekinn einstakling.
  • Þú gætir verið beðin(n) um að gefa upp persónugreinanlegar upplýsingar hvenær sem þú átt í samskiptum við Félag háskólakennara.

Félag háskólakennara notar persónugreinanlegar upplýsingar í samræmi við þessa persónuverndarstefnu. Félagið geta einnig sameinað þær öðrum upplýsingum til að afgreiða umsóknir, útvega og bæta þjónustu við félagsmenn. Þú þarft ekki að veita þær persónugreinanlegu upplýsingar sem við höfum óskað eftir en ef þú kýst að gera það ekki getum við ekki útvegað afgreitt umsóknir, veitt þér þjónustu né heldur brugðist við fyrirspurnum sem þú kannt að senda okkur.

Heimasíða félagsins safnar ekki sjálfkrafa neinum persónurekjanlegum gögnum um notkun og notendur. Umferð um vefsvæðið er mæld, en þær upplýsingar um notkun sem við höfum aðgang að eru ekki persónurekjanlegar.

Félag háskólakennara er ábyrgðaraðili heimasíðunnar, en Reiknistofnun Háskóla Íslands er vinnsluaðili, sem sinnir uppsetningu og rekstri vefsvæðisins fyrir okkar hönd.

Þegar þú gerist félagsmaður félagsins, skráir þig á námskeið, hefur samband við okkur, kunnum við að safna ýmsum upplýsingum, þar á meðal nafninu þínu, póstfangi, símanúmeri, netfangi, heppilegum samskiptamáta og bankareikningum.

Notkun okkar á persónugreinanlegum upplýsingum um þig

  • Þær persónugreinanlegu upplýsingar sem við söfnum gera okkur kleift að senda þér nýjustu fréttir og upplýsingar um væntanlega viðburði. Viljirðu ekki vera á póstlista okkar geturðu afþakkað hvenær sem er með því að senda tölvupóst á netfangið fh@hi.is
  • Við munum nota persónugreinanlegar upplýsingar þínar, svo sem fæðingardag þinn og ár, til að staðfesta auðkenni þitt, aðstoða við auðkenningu notenda og ákvarða viðeigandi þjónustu fyrir þig. Til dæmis getum við notað fæðingardag eða kennitölu til að afgreiða umsóknir þar sem það á við.
  • Annað veifið kunnum við að nota persónugreinanlegar upplýsingar um þig til að senda þér mikilvægar tilkynningar, t.d. upplýsingar um viðhorfskannanir, þjónustukannanir, upplýsingar um kjaramál eða annað sem félagið sendir félagsmönnum. Þar sem þessar upplýsingar eru mikilvægar í samskiptum þínum við Félag háskólakennara getr þú ekki afþakkað þessi samskipti.

  • Við söfnum einnig gögnum á sniði sem ekki er hægt að tengja beint við tiltekna einstaklinga.
  • Við söfnum og vistum upplýsingar um fjölda umsókna í Starfsþróunarsjóð Félags háskólakennara og hvernig þú notar þjónustu okkar.
  • Ef við sameinum ópersónugreinanlegar upplýsingar persónugreinanlegum upplýsingum verður farið með sameinuðu upplýsingarnar sem persónugreinanlegar upplýsingar á meðan þær eru sameinaðar.

  • Félag háskólakennara gerir tilteknar persónugreinanlegar upplýsingar aðgengilegar sjóðum BHM í þvi skyni að fá upplýsingar til að geta afgreitt umsókn eða önnur mál sem þú hefur leitað til félagsins með. Þriðja aðila ber skylda til að vernda upplýsingar þínar.
  • Nauðsynlegt gæti verið – samkvæmt lögum, lagaferlum, málaferlum og/eða beiðni frá opinberum aðilum – að Félag háskólakennara gefi upp persónugreinanlegar upplýsingar þínar. Við gefum upp upplýsingar um þig ef við teljum það nauðsynlegt eða viðeigandi af orsökum sem varða þjóðaröryggi, löggæslu eða annan almannahag.
  • Þessu til viðbótar og þrátt fyrir sérhvert ákvæði þessarar persónuverndarstefnu áskiljum við okkur rétt til notkunar og afhjúpunar á persónuupplýsingum og ópersónulegum upplýsingum í því skyni að rannsaka, koma í veg fyrir eða bregðast við lögbrotum, gruni um svik eða aðstæðum sem fela í sér mögulega hættu á líkamsskaða hjá öðrum einstaklingi, eða í öðrum þeim tilgangi sem lög kveða á um.

Félag háskólakennara mun varðveita persónugreinanlegar upplýsingar þínar eins lengi og þarf til að uppfylla það sem lýst er í þessari persónuverndarstefnu nema lög krefjist eða leyfi lengri varðveislutíma.

Félag háskólakennara veitir þér aðgang og afrit að gögnum í hvaða tilgangi sem er, þ.m.t. til að biðja okkur um að leiðrétta gögnin ef þau eru ónákvæm eða eyða gögnunum ef félaginu ber ekki skylda til að varðveita þau lögum samkvæmt. Við gætum hafnað því að vinna úr beiðnum sem eru lítilvægar/tilefnislausar, stofna friðhelgi annarra í hættu, eru sérlega óhagkvæmar eða krefjast aðgangs sem að öðru leyti er ekki krafist samkvæmt lögum á hverjum stað. Beiðnir um aðgang, leiðréttingu eða eyðingu má senda á netfangið fh@hi.is

Til að tryggja öryggi persónugreinanlegu upplýsinganna þinna upplýsum við starfsfólk Félags háskólakennara um reglur okkar varðandi persónuvernd og öryggi og framfylgjum með ströngum hætti öryggisráðstöfunum innan Félags háskólakennara.

Spurningar varðandi persónuvernd

Ef spurningar eða athugunarefni koma upp varðandi persónuverndarstefnu eða gagnavinnslu Félags háskólakennara eða ef þú vilt kvarta yfir hugsanlegu broti á persónuverndarlögum skaltu hafa samband við okkur á netfangið fh@hi.is

Þegar okkur berst spurning um persónuvernd mun formaður og/eða framkvæmdastjóri félagsins fara yfir samskiptin og leitast við að taka á því tiltekna athugunarefni eða fyrirspurn sem þú vilt fá svör við. Ef málið er umfangsmeira í eðli sínu gætum við óskað frekari upplýsinga frá þér. Öllum slíkum umfangsmeiri samskiptum er svarað. Ef þú sættir þig ekki við svar okkar geturðu beint kvörtun þinni til Persónuverndarstofnunar. Ef þú spyrð okkur munum við leitast við að veita þér upplýsingar um leiðir til að leggja fram kvartanir sem eiga við þínar kringumstæður.