Starfsþróunarsjóður

Starfsþróunarsjóður Félags háskólakennara (SFH)

Association of University Teachers Professional Development Fund (information in English).

Starfsþróunarsjóður Félags Háskólakennara (SFH) er sjóður er samið var um í kjarasamningi félagsins og fjármálaráðherra þann 16. nóvember 2015, bókun þess efnis má finna hér.

Markmið SFH er að stuðla að markvissri starfsþróun félagsmanna svo sem með því að stunda formlegt nám, sækja ráðstefnur/námskeið, sinna rannsóknum og faglegu samstarfi. Enn fremur er það tilgangur sjóðsins að auka möguleika Háskóla Íslands og tengdra stofnana til að gera félagsmönnum kleift að vinna að verkefnum sem fara saman við markmið beggja.

Umsóknareyðublað   Application

Úthlutunarreglur - Allocation rules

Styrkhæf verkefni eru skólagjöld, námskeiðsgjöld þar með talin tungumála og upplýsingatækninámskeið, markþjálfunarnám sem lýkur með gráðu, ráðstefnugjöld, rannsóknamisseri og námsleyfi þar sem viðkomandi vinnuveitandi greiðir ekki allan ferðakostnað. Rannsóknasamstarf við erlenda háskóla og rannsóknastofnanir, rannsókna- og námsferðir til erlendra stofnana og annar útlagður ferðakostnaður, m.a. flug- og lestarfargjöld og/eða aksturskostnaður, hótel- og gistikostnaður. Innanbæjarsamgöngur þegar um er að ræða ferð til og frá lokaáfangastað, t.d. flugvelli eða lestarstöð, til endanlegs gististaðar. Akstur innanlands með einka- eða bílaleigubílum er styrktur um sömu upphæð og lægsta fjargjald almenningsvagna nemur. 

Samgöngur innan borga/sveitarfélaga, bílaleigubílar, launatap, námsgögn, fæði, kynnisferðir og tómstundananámskeið, ritstjórnarfundir og sjálfsræktarnámskeið.

  • Félagsgjald umsækjanda hafi borist félaginu í 3 mánuði samfleytt áður en til útgreiðslu styrks kemur.
  • Styrkfjárhæð er allt að kr. 600.000 á hverjum 18 mánuðum.
  • Reglur um styrkfjárhæð: Mánaðarlegt iðgjald að meðaltali að upphæð kr. 2.100 veitir rétt á fullum styrk kr. 600.000. Mánaðarlegt iðgjald að meðaltali, á bilinu kr. 1.050 til kr. 2.099 veitir rétt á hálfum stykr kr. 300.000. Mánaðarlegt iðgjald að meðaltali lægra en
    kr. 1.050 veitir ekki rétt til styrks.
  • Greiðslur úr sjóðnum fara að jafnaði fram gegn framvísun frumrits reiknings.
  • Lokadagur fresta til að skila inn umsókn, ásamt fullnægjandi gögnum, er síðsti dagur hvers mánaðar.
  • Styrkir úr sjóðinum eru að jafnaði greiddir út mánaðarlega.

Vanda skal frágang umsóknar, í henni skal nákvæmlega tilgreint með hvaða hætti umsækjandi hyggst verja styrknum auk annarra upplýsinga sem tilgreind eru á eyðublaðinu. Ef umsókn lýtur að endurgreiðslu kostnaðar, sem samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er mældur í erlendum gjaldeyri, ber umsæknanda að sýna fram á hver sá kostnaður hafi verið í íslenskum krónum.

Stjórn sjóðsins skipa:

  • Íris Davíðsdóttir, formaður, FH.
  • Jens Guðmundur Hjörleifsson, FH.
  • Guðrún Margrét Eysteinsdóttir, HÍ.
  • Þórana Elín Dietz, HÍ.
  • Framkvæmdastjóri er Helga Birna Ingimundardóttir.

Starfsreglur stjórnar, desember 2017.
Samþykktir starfsþróunarsjóðs, desember 2017.