Nýr kjarasamningur undirritaður, kynning kl. 11 föstudaginn 14. apríl nk. á Teams

Samninganefnd Félags háskólakennara var nú rétt í þessu að skrifa undir framlengingu á kjarasamningi við Samninganefnd ríkisins með fyrirvara um samþykki félagsmanna. 

Samningurinn verður kynntur föstudaginn 14. apríl kl. 11, á Teams, sjá meðfylgjandi hlekk.

Atkvæðagreiðsla um samninginn hefst svo kl. 12 sama dag og verður hún rafræn.

Vonumst til að sjá ykkur sem flest,

Fh. samninganefndar Félags háskólakennara,

Baldvin Zarioh, formaður.