Vinnumatssjóður Félags háskólakennara

Árið 1989 var samið var um tilvist vinnumatssjóðs í kjarasamningum félagsins og fjármálaráðherra með nýrri kjarasamningsgrein nr. 1.5.7 einnig má sjá bókun í stofnanasamningi félagsins og HÍ þann 28. febrúar 2005.

Vinnumatssjóður Félags háskólakennara er afkastahvetjandi sjóður fyrir kennara og sérfræðinga í FH þar sem greitt er fyrir rannsóknir umfram vinnuskyldu. Styrkir úr sjóðunum eru þannig háðir rannsóknavirkni, þar sem greinar í ritrýndum tímaritum svo og bækur, innlendar og erlendar, vega þyngst. Með kennurum og sérfræðingum er átt við eftirfarandi starfsheiti: Aðjunkt, lektor, dósent, sérfræðingur, fræðimaður og vísindamaður.

Akademískir starfsmenn Háskóla Íslands eiga að skila rannsóknaskýrslu ár hvert.
Með henni eru lögð fram þau rit- eða hugverk sem meta á vegna Vinnumatssjóðs eða Ritlauna- og rannsóknasjóðs prófessora.

  • Sótt er um í sjóðinn með því að skila rannsóknarskýrslu í gegnum Uglu.

Samkvæmt reglum Vinnumatssjóðs frá 2014 var fjárhæð vinnumatssjóðs FH vegna rannsókna er 12,5% af árslaunum fyrir dagvinnu þeirra kennara og sérfræðinga sem eru í a.m.k. hálfu starfi við Háskóla Íslands með álagi samkvæmt töflum 2.1 og 2.2 í 2. kafla stofnanasamningi Félags háskólakennara og Háskóla Íslands frá 2014. 

Áfrýunarnefnd: Hægt er að leita til sérstakrar áfrýunarnefndar um vinnumat.